Allt úr engu (2020)
Episodes
Episode 1Aron Már ÓlafssonÍ þessum þætti heimsækir Davíð eldhúsið hjá leikaranum Aroni Má Ólafssyni. Davíð gramsar í ísskápnum og leitar að hráefni sem Aron og fjölskylda geta nýtt betur. Grillað brokkólíní, birkivafinn lax og banana súkkulaði-myntu-mús er eitthvað sem vafalaust fær áhorfendur til að fá vatn í munninn.
Episode 2Áslaug Arna SigurbjörnsdóttirDavíð heimsækir eldhúsið hjá Áslaugu Örnu. Í ísskápnum hjá dómsmálaráðherra leynist ýmislegt sem nýta má í alskyns matreiðslu. Hver hefði t.d. trúað því að gúrka myndi passa vel í eftirrétt?
Episode 3GeorgDavíð heimsækir einn þekktasta barþjón landsins, Georg. Að þessu sinni verður unnið með gulrætur og matreiða þeir unaðslega rétti. Einnig mun Davíð kenna okkur hitt og þetta. Til dæmis hvernig við búum til smjörsósu úr gamalli súrmjólk.
Episode 4JúlíanDavíð heimsækir íþróttamann ársins, Júlían J.K. Jóhannsson. Á heimili kraflyftingakappans fann Davíð grasker sem hann ætlar að nýta girnilega rétti. Hvernig hljómar grilluð flanksteik með bökuðu graskeri og steiktum villtum sveppum?
Episode 5Birna RúnDavíð heimsækir leikkonuna Birnu Rún Eiríksdóttir sem sló m.a. í gegn í Jarðaförin mín. Davíð leitast við að sýna henni hvernig betur megi nýta matvöru á hennar heimili.
Episode 6Ragnheiður SaraAll 6 episodesCrossfit-stjarnan Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir býður Davíð velkominn í eldhúsið sitt. Rauðkál í epladjús og grillað toppkál eru réttir sem gætu hljómað eins og áskorun fyrir þau Davíð og Söru.
Cast & Crew
Similar titles



















